NORTEC 2026 – stökkpallur ykkar inn á þýska markaðinn

Tryggið ykkur sýningarbás núna!

Framleiðsla. Nýsköpun. Framtíð.

NORTEC er fagsýning fyrir framleiðsluiðnað sem fer fram í Hamborg á tveggja ára fresti. Á sýningunni er lögð áhersla á vélknúin verkfæri og framleiðslukerfi, nákvæmnisvinnutæki, mæli- og prófunartækni, þjarkatækni og sjálfstýringu, hugbúnaðar- og upplýsingatæknilausnir, íhluti, samstæður, fylgibúnað, vinnsluefni og rekstrarvörur, vörustjórnun og rekstrartengdan útbúnað sem og þjónustu. Með fjölda innlendra og erlendra sýningaraðila nær NORTEC yfir öll stig virðiskeðjunnar á sviði málmvinnslu. Í meira en 30 ár hefur sýningin verið fastur liður hjá framleiðslufyrirtækjum í Hamborg og nágrenni sem og fyrir gesti víðs vegar að í Þýskalandi og frá öðrum Evrópulöndum. Hún gefur sýningaraðilum einstakt tækifæri til að tengjast þessum hluta þýsks iðnaðar á einum og sama stað.

Sýningin stendur yfir: 3.–5. febrúar 2026
Sýningarstaður: Messegelände Hamburg
Skipuleggjandi: Landesmesse Stuttgart GmbH & Co. KG í samstarfi við VDW (Verein Deutscher Werkzeugmaschinenfabriken)
Fer fram: Á tveggja ára fresti

Þrjár góðar ástæður fyrir því að taka þátt

Nýtið ykkur gáttina að þýskum og evrópskum iðnaði

Nýtið ykkur gáttina að þýskum og evrópskum iðnaði

Hamborg er mikilvæg viðskiptamiðstöð í Norður-Þýskalandi og því tilvalin til að hasla sér völl á þýska markaðnum. Á NORTEC geta fyrirtæki frá Norðurlöndum kynnt tæknilausnir sínar í einu stærsta iðnríki Evrópu.

Nýttu þér nálægðina milli Norðurlanda og Norður-Þýskalands

Nýttu þér nálægðina milli Norðurlanda og Norður-Þýskalands

Landfræðileg nánd og svipaðar áherslur á sjálfbærni, stafræna þróun og álíka í viðskiptum skapa beina tengingu við norðurþýska markaðssvæðið. Komið framsæknum og umhverfisvænum lausnum ykkar á framfæri og sýnið af hverju Norðurlöndin teljast vera leiðandi á heimsvísu.

Nýtið ykkur möguleikana til að koma á tengslum og samstarfi

Nýtið ykkur möguleikana til að koma á tengslum og samstarfi

NORTEC er vettvangur til að skiptast á þekkingu og byggja upp viðskiptasambönd til lengri tíma. Kynnið sérfræðiþekkingu ykkar á sviði sjálfstýringar, vélsmíði og stafrænnar þróunar til að koma á samstarfi við þýsk fyrirtæki. Á pallborðsumræðum, vinnustofum og B2B-hittingum gefst auk þess tækifæri á að komast í beint samband við mögulega samstarfsaðila og viðskiptavini.

Sýningarsvið NORTEC

  • Fræsivélar
  • Vélar fyrir rennismíði
  • Tölvustýrðar framleiðsluvélar
  • Bor- og útborunarvélar
  • Sveigjanlegar framleiðslueiningar og -kerfi
  • Flutningsvélar og vinnslueiningar
  • Slípivélar
  • Verkfæraslípivélar
  • Tannhjólaskurðarvélar
  • Hefil-, úrreks- og rýmunarvélar
  • Sögunar- og skurðslípivélar 
  • Snittvélar
  • Brýni-, samslípi-, púss- og gráðuhreinsunarvélar
  • Blikksmíðavélar
  • Stans-, nag- og úrholunarvélar
  • Blikkbeygjuvélar
  • Tölvustýrðar blikksmíðavélar og sveigjanleg blikksmíði (leysigeisli)
  • Pressur
  • Pressur til sérstakrar notkunar
  • Röra-, stanga- og mótavélar
  • Víravélar
  • Vélar til framleiðslu á boltum, skrúfum, róm og hnoðum
  • Mótunarvélar
  • Vélknúin verkfæri með rafneistun og málmskurði
  • Áletrunarvélar
  • Vélknúin verkfæri og framleiðslukerfi til notkunar í kennslu
  • „Parallel kinematic“-vélar
  • Örvinnsla
  • Notuð vélknúin verkfæri
  • Suðu-, skurðar- og logskurðarvélar
  • Iðnaðarofnar, hitameðhöndlunarkerfi
  • Vélar og kerfi fyrir yfirborðstækni
  • Þrívíddarprentunarkerfi
  • Framleiðslukerfi fyrir rafeindabúnað
  • Önnur framleiðslukerfi
  • Skurðarverkfæri
  • Mótunarverkfæri og mót fyrir málma
  • Slípiverkfæri og slípiefni
  • Handverkfæri
  • Verkfærahausar
  • Verkfærakerfi
  • Verkfærastilling
  • Festibúnaður
  • Gerð verkfæra og móta
  • Fylgibúnaður fyrir gerð verkfæra og móta
  • Mælibúnaður og -skynjarar
  • Mælitæki og mælivélar
  • Prófunarkerfi fyrir framleiðslu og rannsóknarstofur
  • Önnur tæki, áhöld og íhlutir
  • Myndvinnsla
  • Gæðaeftirlit, hugbúnaður
  • Íhlutir fyrir mæli- og prófunarbúnað
  • Greiningartæki, almenn
  • Þjónusta fyrir gæða-, mæli- og prófunartækni
  • Iðnaðarþjarkar
  • Meðhöndlun vinnustykkja og verkfæra
  • Uppsetningar- og meðhöndlunartækni
  • Sjálfstýring við geymslu og flutninga
  • Hugbúnaður fyrir vöruþróun
  • Hugbúnaður fyrir vélar
  • Hugbúnaður fyrir framleiðslu og skipulagningu framleiðslu
  • Stafræn framleiðsla / iðnaður 4.0 / IIOT
  • Gagnastjórnunarhugbúnaður
  • Viðskiptahugbúnaður
  • Tölvukerfi og jaðarbúnaður
  • Vélbúnaður
  • Vökva- og þrýstiloftsbúnaður
  • Raf- og rafeindasamstæður og -útbúnaður
  • Stýringar og drif
  • Smurning og kæling
  • Förgun
  • Öryggi og umhverfi
  • Fylgibúnaður
  • Málmar
  • Hörð efni
  • Trefjastyrkt vinnsluefni
  • Málmvír
  • Hálfunnin vara
  • Duft, kvoða, korn og massi
  • Annað vinnsluefni og rekstrarvörur
  • Flutnings- og geymslutækni 
  • Verkstæðis- og lagerbúnaður
  • Lyfti- og flutningatækni
  • Vöruferlisstjórnun
  • Öryggistækni
  • Annar rekstrartengdur útbúnaður
  • Framleiðsla í verktöku
  • Viðhald og viðgerðir
  • Samtök og fyrirtækjaklasar
  • Rannsóknastofnanir og háskólar
  • Þjónusta fyrir framleiðslu og vöruþróun
  • Forlög
  • Hönnun
  • Almenn þjónusta

Gestir og geirar sem þeir tilheyra*

4778 gestir sóttu NORTEC árið 2024. Sýningin mæltist vel fyrir hjá fagaðilum sem gáfu henni næsthæstu einkunn og sögðust 87% vilja mæla með henni. Þrír af hverjum fjórum gestum sögðust vilja koma aftur á sýninguna. 

Fagaðilar úr mismunandi geirum sóttu sýninguna: 

Gerð véla og vélasamstæðaMálmvinnsla
BílaframleiðslaFlug- og geimferðatækni
LækningatækiGerð verkfæra og móta
Raf- og rafeindaiðnaðurSiglingatækni/skipasmíði
Nákvæmnisvélar/ljóstækniVerktakar
Birgjar Auk fjölmargra annarra geira

* Heimild: Könnun fyrir gesti á NORTEC 2024

Svipmyndir

Ertu með spurningar?

Sláðu endilega á þráðinn eða sendu okkur tölvupóst!

Tengiliður hjá Messe Stuttgart

Fulltrúi fyrir Norðurlönd (Danmörk, Ísland, Noreg, Svíþjóð)